Hæ! Ég var bara að spekúlera hvort það væri almenn stemning fyrir því að safna LoTR fígúrunum frá ToyBiz? Þær eru einhverjar þær fallegustu og vönduðustu sem ég hef séð! Ég á því miður bara einn kall núna, rohirrim soldier sem ég keypti í Nexus, þeirri líka ágætu búð, en ég ætla að bæta úr því sem fyrst. Ég ætlaði að kaupa mér Cave Troll en það er víst uppselt í heiminum! Andsk… Verst hvað þær eru dýrar hér á landi, úti kosta þær ekki nema brot af verðinu hér! En endilega segið hvaða kalla þið eigið eða langar í!

-turamba