Þar sem ég hafði heyrt að lengri útgáfan væri algjör snilld fór ég í dag og keypti mér hana, hún var dýr en ég lét mig hafa það.
Strax og ég kom heim fór ég að horfa á hana og fattaði þá hvað allir voru að tala um. Þvílík snilld er þessi lengri útgáfa! Með mörgum nauðsynlegum upplýsingum fyrir þá sem ekki hafa lesið bókina. Ég mæli með þessarri útgáfu fyrir alla harða LotR aðdáendur og er mér byrjað að hlakka til í nóvember þegar TTT extended edition kemur út.
-Barliman