Mig langar að vita hvor einhver hér hafi lesið bókina “Bored of the Rings”. Ég sá í ævisögu Tolkiens að hún hafi verið gefin út (til þess að gera grín að fólki eins og okkur) fyrir svo lítið löngu síðan. Mér finnst þetta náttla bara hlátur… og verð því að fá að heyra eitthvað meira um þessa bók.
Hefur einhver hér meiri upplýsingar um hana en eru í ævisögunni?
Hefur einhver lesið hana?
Á hana einhver?
…ef svo er þá…
“blikk,blikk, voða sætt og fingurkoss” Getur einhver lánað mér hana?
Kv,
angie
p.s.
sendi einhver kvörtunarmail á útgefanda ævisögunnar? Er viss um að Tolkien gamli snúi sér marga hringi í gröfinni út af henni því hún var svo hroðvirknislega unnin.