Sælir hugarar og Tolkien fólk,ég eins og svo margir aðrir er alveg heillaður af myndunum tveimur FOTR og TTT og nú langar mig að taka næsta skref og byrja að lesa bækur Tolkiens en málið er að ég veit ekkert hvar á að byrja.

Mér skilst að það séu til endalausar bækur um þetta efni t.d aukabækur um tungumál landafræði og fleira.Þannig að nú vill ég gjarnan starta smá umræðu hér

Hvar á maður að byrja ? hvaða bók er fyrst ? og síðast en ekki síst,hverjar eru ykkar uppáhaldsbækur (og karekterar)?

Eitt enn að lokum,hvort mælið þið með ensku útgáfunni eða þeirri Íslensku (er góður í Ensku) ?

Endilega komið með góð svör….