Hæj,
Ég er núna hálfnaður með aðra bókina af Lord Of The Rings og finn það að mér vantar svör við nokkrum spurningum sem bókin gat ekki svarað mér. Kannski getur einhver fróðari um verk Tolkiens svarað þessum spurningum fyrir mig og kannski sagt mér hvar það kemur fram ?

1. Ég las kaflan um Treebeard og þaðan þróaðist ein spurning “Hvert fóru Entwifes ? Og hvar eru þær ?”

2. Og svo líka í sambandi við Uruk-hai. “Hvernig bjó Saruman til Uruk-hai ? s.s. Hverju æxlaði hann saman” Mér dettur í hug að hann hafa æxlað saman mönnum og orcum en ég veit samt ekki.

Vona að einhver geti svarað þessu fyrir mig. Og plís ekki vera með eitthvað skítkast þó þetta hafi komið framm í bókinni..