fann þetta á tilverunni:

fréttatilkynning til Tilverunotenda frá Undirtónum:
Ert þú sannur Hringadrottinssögunörd - veist þú allt!
Sérstakt 32 síðna aukablað Undirtóna verður gefið út með Mogganum um jólin, rétt áður en Lord Of The Rings II - Two Towers verður frumsýnd. Undirtónar eru að leita að fólki sem hefur frá einhverju fróðlegu eða skemmtilegu að segja. Átt þú safngripi, átt þú búninga, sverð eða hnífa, ertu kannski búin/n að búa til geggjaða heimasíðu eða er herbergið þitt undirlagt undir dót í kringum sögurnar. Ef svo er þá myndu Undirtónar vilja heyra frá þér.
Ef þú telur þig vera sannan Hringadrottinssögunörd þá væri gaman að heyra frá þér. Sendu póst á LOTR@UNDIRTONAR.IS fyrir 1. des og segðu frá því af hverju þeir ættu að kíkja í heimsókn til þín.
Það verður sannarlega gaman að heyra frá þér!
Kv. Undirtónar

Því miður er ég ekki nógu mikill LOTR nerd til að geta tekið þátt í þessu, en vonandi sér maður skemmtilegt blað þegar þar að kemur.<br><br>——
Kv. Steini
<i>Of course I'm home. I'm always home. I'm uncool.</i>
//Lester Bangs - Almost Famous
Kv, Steini