ég ætla ekki að fara að skrifa eitthverja ritgerð.
ég hef bara eina spurningu.
getur verið að Tolkien hafi dregið Galadriel upp eftir Völvu?
(völuspá)
Völvan fellur reyndar í dá þegar hún sér bæði fram og aftur í tíman og hvað gæti orðið en allt er óljóst hvort það hefur gerst eða hvort það á eftir að gerast, allt tímaskyn við sýnirnar sem hún sér er óljóst, og þá einnig hvenær RAGNARÖK munu gerast.

auk þess fékk Tolkien fullt af nöfnum úr orðum Völvu, sem hann notaðist við í Hringadróttinssögu, hobbitanum og fleirri sögum.