Þessi DVD diskur er sú hin mesta snilld sem ég hef augum litið! Ég get einfaldlega ekki orðum bundist yfir snilld þessa setts! Að utan lítur hann ótrúlega vel út og jafnvel enn betur þegar maður opnar settið. Myndin er n ánast eins og ný því að svo mörgum atriðum hefur verið skeytt inn í í formi lengdra sena og alveg nýjar senur eru þónokkrar! Þetta er brilljant pakki! Ég var til klukkan hálf 3 í nótt að glápa, bæði á myndina og eitthvað af aukaefninu sem er slatti af! Ég ætlaði að kaupa pakkann með styttunum af the Argonath en það var ekki komið, svo ég keypti bara íslensku útgáfuna, sem er óhemju falleg! Æ, ég er farinn heim að glápa!