Aragorn son of Araþorn ég ætla að leyfa ykkur að lesa smá um hann Aragorn. Þetta er mest í viðaukunum úr Return Of The King, Hilmir Snýr Heim á íslensku.

Aragorn er dúndani og faðir hans hét/heitir Araþorn og móðir hans Gilrún(kann ekki ensku nöfnin sorry). Þegar Aragorn var 2 ára gamall dó faðir hans og fór hann þá með móður sinni til Elronds og var hann lengi þar, og var hann kallaður Estel sem þýðir “Von”,. því Elrond vildi leyna nafni hans og ættum.
Þegar Estel var tvítugur létt Elrond hann hafa Hring Bahírs og brotin úr sverðinu Narsíl og sagði honum sitt raunverlega nafn og ættir hans.
Daginn eftir það hitti hann Arveni dóttur Elronds og var sá fundur þeirra líkur fundi Berens og Lúþíenar, og var Estel að syngja erindi úr ljóðinu um Bren og Lúþíen, þetta var fyrsti fundur Aragorns og Arvenar.
Svo skildi Aragorn við hús Elronds ásamt Arveni og móður hans. Í næstum 30 ár hélt hann uppi barátunni gegn Sauroni og hann bast vináttuböndum við vitkann Gandalf og öðlaðist hann mikla visku og þekkingu af honum.
Hann fór í marga hættuför með honum, en eftir því sem leið á árin fór hann að ferðast meira einn.
Svo gerðist það, þegar Aragorn var níu og fjörtíu ára að hann sneri við úr hættuför á mörkum Mordors, þar sem Sauron hafði tekið sér bólfestu og bruggaði launráð.
Hann var orðinn þreyttur og hugðist skreppa heim í Rofadal til ða hvíla sig um stund, áður en hann legði uppí nýjar langferðir til fjarlægra landa. En hann átti leið framhjá Lóríenslandi og Galadríel drottning veitti honum inngöngu í hið hulda land.
Hann vissi ekki að Arven dvaldist þar einmitt um þær mundir með ættingjum móður sinnar.
Hún hafði lítið breyst því að ár dauðlegra höfðu enginn áhrif á hana. Þó var svipur hennar nú alvarlegri og sjaldan heyrðist hlátur hennar.
En Aragorn hafði nú vaxið til fullnaðarþroska jafnt í líkamlega og önd.
Galdríel bað hann að taka af sér slitinn og ferðalúð fötinn og hún klæddi hann í silfur og hvít, með álfgráa skikkju utan um yfir og skæran gimstein á enni.
Þá sýndist hann vera eitthvða meira en Maður, hann minnti helst á Álfahöfðingjana frá Vestureyjum.
Og þannig sá Arven hann nú fyrst aftur eftir langan aðskilnað þeirra.
Aragorn gekk til Arvenar undir trjám Kalas Galadon þöktum gullnum blómum, hún hafði valið og ákveðið sér örlög.
Þá um árstíð blómgvunar gengu þau saman um rjóður Lotlóriens, þar til tími var kominn fyrir hann að halda áfram för sinni.
Og að kvöldi Miðsumardags héldu þá Aragorn og Arven saman upp á hinn fagra Amróðahól í miðju landinu og þau gengu berfætt á ódáinsgrasinu sem aldrei visnarinnan um elanór og nifredilblómin.
Og þar sem þau stóðu á toppnum horfðu þau austur í Skuggann og vestur í Rökkrið og bundust heitum og voru hamingjusöm.
Og síðan byrjar hringastríðið og ég ætla ekki að eiðileggja fyrir þeim sem ekki hafa lesið LOTR. Og eftir Hringastríðið varð Aragorn kóngur yfir öllum mönum.
Aragorn dó í grafhýsum Mínas Tírið og eftir þa ðfór Arven til Valinor.
Fëanor, Spirit of Fire.