Ég hef mikið verið að spá í því að skrifa einhverja greyn að undanförnu (mér datt ekkert í hug fyrir keppnina), þá datt mér í hug að skrifa bara um draum sem ég dreimdi sem tengist LotR. Það væri gama ef sem flestir reyndu að skrifa einhvern draum úr LotR sem þeir hafa dreimt, bara svona til að fá smá hreifingu á áhugamálið :)

Hér kemur draumurinn: Ég var sdaddur heima hjá mér og allt í einu ryðjast Nazgúlar inn, (mér mynnir að þeir voru bara fjórir) og ég auðvitað trillist úr hræðslu og reyni að komast undan. Mér fannst svolítið skrítið þegar ég fer að hugsa út í þetta að ég varð ekkert “hissað” þegar ég sá þá ,það var eins og það væri eðlilegt að Nazgúlarnir gætu ruðst inn hvenær sem væri,þetta var eins og venjuleg ógn sem ógnaði öllum. En víkjum okkur aftur að draumnum, mér tókst að flíja til vinar míns sem á heima þrem húsum neðar í götunni. Eithvernveginn tókst mér að stinga þá af þannig að Nazgúlarnir tíndu mér. Ég man hvað ég var óendanlega hræddur þegar ég var að filgjast með þeim leita að mér. Á endanum gáfust þeir upp á því að leita af mér, en þá gerðist eitt jafnvel enþá verra, Nazgúlarnir fóru til ömmu minnar og afa, sem eiga heima næstumþví beint á móti mér. Þegar þeir voru að labba að húsinu missti ég stjórn á mér og bara gerði eithvað, hljóp bara að húsinu og lét þá ellta mig og ég hljóp og hljóp og ég var á leiðinni upp á fjall þegar ég skindilega vaknaði.

Þetta virtist kanski ekki svo hræðinlegt en ég get fullvisst ykkur um að þetta var hræðinlegt!. Þessi draumur var svo raunverulegur !

Hlakka til að heira í fleirum.

Afsakiðstafsetningarvillur ég er lesblindu