Jæja mig hefur lengi langað til að gera þetta, svo spreytið ykkur á þessu(í lokin koma líka nokkrar aðeins erfiðari)
Skemmtið ykkur:

1.Hversu marga hringi gaf Sauron:

a)Mönnum
b)dvergum
c)álfum

2.hvað hét barþjónninn á fáknum fjöruga (the prancing pony)?

3.Hversu margir voru Nazgúlarnir?

4.Hvað heitir faðir Þjóðans?

5. Hvernig eru Jóvin (Éowin) og Jómar (Éomar) tengd Þjóðani (Théodan)?

6.Hvað hét Gollrir (Gollum) áður en hringurinn heltók hann?

7.Nefndu alla níu meðlimi föruneytisins

8.Hvað hét örninn sem bjargaði Gandalfi úr Orþanka (Orthank)

9.Hverjir voru það sem báru álfahringana þrjá?

10.Hvað heitir leikarinn sem lék Faramír?

11.Hvað heitir leikarinn sem lék og ljáði Gollri rödd sína?

12.Hvert fór hvíta skipið með nokkrar af söguhetjunum í lok sögunnar?

Núna koma þær erfiðu:

1. Hvað heitir móðir Fróða og af hvaða hobbita ætt var hún?

2.Hvað heitir maðurinn sem hannaði módelin fyrir myndirnar þrjár?

3.Hver samdi tónlistina fyrir allar þrjár myndirnar?

4.Hvað gerði Barry Osbourne við gerð myndanna? (hann er ekki skildur Ozzy Osbourne)