Hér eru smá spurningar og ég gef stig eftir þeim en þið fáið engin stig í rauninni. Mér datt bara í hug að gera þetta sona fyrir Tolkien aðdáendur. Þeir sem að svara þessu verða að hafa lesið allar LOTR og Hobbitann.
Ég sendi svo eftir umþb viku svörin við öllu og hversu mörg stig maður fékk fyrir hvert rétt svar.
1. Hvað hét kona Dynþórs?
2. Hverjir áttu álfahringana þrjá í endinn á þriðju bókinni?
3. Hver sagði þetta: “Gondor has no king. Gondor needs no king.”?
4. Hvað hét sonur Þjóðans?
5. Hver drap Þjóðan?
6. Nefnið 4 nöfn Aragorns.
7. Hvert fer Arven eftir andlát Aragorns?
8. Undir hvaða dulnefni fer Jóvin í stríðið með Jóherrunum?
9. Hver er Skarki?
10. Hver drepur Sarúman?
11. Hver var séffinn?
12. Hvað hét mamma Bilbós?
13. Hvers sonur er Dynþór?
14. Hvaða nýju tegund af Orkum þróar Sarúman?
15. Hvernig dó Balinn Fundinsson?
Vona að þið hafið haft gaman af þessum spurningum.