Þegar ég renni yfir myndir, þræði eða what it is sé ég að það eru allir voðalega bitrir eitthvað, það er varla neitt sent inn án þess að einhverjir sem eiga eitthvað erfiðara með sig en aðrir skíti yfir þetta að tilganslausu.
Já, ég veit, ég veit þið megið þetta, og það getur sko enginn bannað ykkur þetta, en það er alveg sama það þýðir ekki að þið þurfið að gera þetta. Sumir notendur sem senda inn fleiri myndir en aðrir fá t.d óþarfa diss á það vegna þess að fólk lætur allan andskotann fara í taugarnar á sér. Sumum finnist sniðugt að taka myndir af sér og senda hérna inn, hverjum er ekki andskotans sama þótt þér finnist olnboginn á viðkomandi ljótur ? Í alvöru, reynið að kommenta á viðfangsefnið og sleppa óþarfa dissi sem kemur málinu oft á tíðum ekkert við.
Líka, ef þið ætlið að fara í einhverjar ýkt sniðugar einkahúmors samræður, gerið það á msn.
Komin með nóg af þessu væli í ykkur :p