Kosning er hafin! Það voru margir bannerar sem bárust inn og það voru bara nokkrir sem komust að til að fólk fái nú ekki valkvíða! Þátttaka var betri en ég hafði allavega vonast eftir og vil ég þakka öllum fyrir sem sendu inn banner. Könnunin verður sennilega lengur en venjulegar kannanir og þið sem eigið könnun eftir þessari könnun sem verður eytt, endilega sendið inn aftur.

Könnunin með bannerunum er fyrir neðan greinarnar. Kjósið nú þann sem ykkur þykir fegurstur því hann á eftir að prýða bannersvæði tískunnar um ókomin ár.