Tíska er lífstíll!…

…en misjafn er smekkur manna. Ég er byrjuð á svokölluðum lífstíls greinum þar sem ég tek eitt fatamerki fyrir í einu. En því miður get ég ekki fjallað um fatamerki sem allir á áhugamálinu fíla svo að ef þú telur ólíklegt að ég fjalli um eitthvað sem þú vilt endilega sjá, þá geturðu annaðhvort sent mér skilaboð og ég tek það til greina eða einfaldlega gert það sjálf/ur! :)

ATH. Ég er ekki að taka fyrir mín uppáhaldsmerki, til þess að fyrirbyggja allan misskilning. Ég tek fyrir það sem ég veit að er vinsælt. Þess vegna get ég ekki tekið allt fyrir því kannski gengur þú í fötum sem enginn annar gengur í. Þá er um að gera að koma með grein inn! ;)

Góðar stundir.