Öskudagurinn Ég hef alltaf elskað öskudaginn og legg alltaf frekar mikið í að gera skemmtilegan búning og svona. En já ég var að fletta í gegnum gamlar myndir og fann mynd síðan 2006 og ákvað að finna svo myndir alveg þangað til núna og skella saman í eina mynd. 2006; Haha já þetta átti upprunalega að vera Silvía nótt en ég og vinkona mín breyttum þessu í rokkara, vorum alveg eins. 2007; Var djöfullinn var bara ein þetta árið, er mjög ánægð með hárið þarna og myndi gera ALLT til að fá þetta hár aftur. 2008; Haha ég og vinkona mín gömul hjón. Tímabilið sem okkur fannst geðveikt fyndið að gera grín af gömlu fólki, en við lögðum mjög mikið í þetta og þetta var mesta snilld ever. 2009; Var engill með herutattú í andlitinu og vinkona mín var skratti á móti. Skemmtilegt að geta borið svona saman :)
Það eru tvær leiðir til að öðlast innri frið: Að gera