Hárið mitt by JohnnyB Jájájá, svona var hárið á mér um daginn í einhverjar tvær vikur. Litaði það svart og gerði hanakamb fyrir atriðið okkar á árshátíð Árdegis en við tókum sem sagt Love Gun með KISS, í full make up. Var mjög sáttur með hanakambinn (í annað skipti sem ég geri þetta) en nennti því ekki til lengdar því það þarf að setja efni í hann daglega og ekkert smá í hvert skipti.

Í sérstöku aukahlutverki á þessari mynd er Emilía Snærós, 8 mánaða gömul dóttir mín. Gefum henni gott klapp fyrir að vera algjört krútt.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _