Það fólk getur hugsað eins og það vill. Það breytir því ekki að kvartanir þess um spillta æsku eru í flestum tilfellum uppblásin, óupplýst sjálfsumgleði.
Þetta fólk hugsar og hugsar og kemst víst að þeirri niðurstöðu að krakkar í fyrri tíð hafi verið ofurþroskaðir snillingar án tilhneigingar til einhvers sem talist gæti grunnhyggið.
Ég meina, við hvað eru menn að bera saman æskuna í dag til að komast að þeirri niðurstöðu að æskan í dag sé eitthvað spilltari?
Þetta er bara væl og sjálfsumgleði.
Krakkarnir og við táningarnir erum, höfum verið og munum alltaf vera bölvaðir hálfvitar upp til hópa.