:( Versta martröð lífs míns! Uppáhalds gallabuxurnar eru að gefa sig! Slit í klofi og álíka..
Ég keypti þær í Zero(ekki Zero hauskúpumerkið) outlet búð í Þýskalandi í júlí árið 2004. Sem þýðir að ég hef átt þær og notað næstum non-stop í 2 og hálft ár. Ágætis ending svosem. Enda orðnar sooldið upplitaðar:D
En ég syrgi þær djúpt. Þið vitið hvað það er erfitt að finna hinar fullkomnu gallabuxur. Gerist eiginlega bara á nokkurra ára fresti.
En ætli ég noti þær kannski ekki smáá áfram..líklega þangað til ég lendi í vandræðalegur *rrrrriiipp* atviki í fjölmenni:'D