Gladiator sandalar Vinkona mín keypti sér þessa sandala í ferð okkar til Kaupmannahafnar í sumar. Kom mér mjög á óvart þar sem þetta er ekki beint hennar stíll, en ég var mjög stolt:) Hún keypti þá í Field's verslunarmiðstöðinni í Deichmann Sko á 169 DK kr minnir mig.

Það er eitthvað frekar.. kinky við þessa sandala og hún fékk marga til að snúa sér við og glápa á skóna á götum Kaupmannahafnar;P