Jæja
Segið mér hvað þið gerið til að hafa hárið glansandi og fínt…
Ég er með mjög þurrt hár og hef verið i örugglega i 6 ár að breyta um hársnyrti vörur og vesenast.
Kannist þið ekki við að fynna æðislegt sjampó og nota það svona í hálfann mánuð og svo “hættir það að virka” gefur ekki lengur gljáann og vesen.Nákvæmlega eins og það myndar ónæmiskerfi fyrir því!
Og þá byrjar maður aftur að fara á markaðina að leita að nýju sjampói..úff
En eitt sem hefur alltaf staðið við sitt er kókoshnetu olía frá bodyshop…hárið glansar feitt og olían skemmir ekkert :)
Og “kengúrusjampóin”(fæst í nóatúni,í hvitum brúsa með kengúrumynd) virka mjög vel en þau eru líka svona virka i hálfan mánuð geggjað flott svo kemur ónæmið….næringin og allt er gott frá þessu fyrirtæki..heavy góð lykt af þessu :)