Mér hefur undist eftir tilkomu Smáralindar að útsölur hér séu sífellt að verða betri, þær byrja fyrr, afslátturinn er meiri og úrvalið er meira.
Sérstaklega finnst mér GK konur (sem er reyndar í Kringlunni) vera að standa sig vel í þessu efni, þar er bara 40% afsláttur á öllu ólíkt til dæmis 17 þar sem er 10-30% afsláttur þegar best lætur og þá er yfirleitt ekki eftir neitt nema föt í allra minnstu stærðum.

Einnig eru búðir eins og 38 þrep og Kron að standa sig mjög vel.

Debenhams í Smáralind hefur einnig verið duglegt við að hafa allskonar tilboð á fötum svo sem 2 fyrir 1 og oft er hægt að gera alveg frábær kaup þar.
Talbína