Ég vil bara koma með smá kvörtun, þetta áhugamál ætti frekar að heita megrunarhornið heldur en tíska því það eina sem er rætt um hér er holdafar.

Tíska snýst bara um svo miklu meira en það að vera grannur eða feitur þó að vissulega séu sveiflur í því hvernig vöxtur er mest í tísku á hverjum tíma.

Tölum frekar um föt eða skó og klippingar, snyrtidót og skemmtilega hluti!

Ég var til dæmis að kaupa geðveikt flotta skó á útsölu í 38 þrep, ekta leður og ég er bara í skýjunum.

Það væri örugglega meira líf hér ef meira væri talað um hvar hægt væri að gera góð kaup eða hver séu til flottir bolir eða eitthvað þannig!
<br><br>Talbína
Talbína