Ég er að leita eftir saumastofu eða sjálfstæðri saumakonu sem tekur að sér breytingar á kjólum fyrir ekkert alltof mikinn pening.
Hef farið á saumastofuna í Smáralind og var nokkuð sátt við verðið en mér fannst ekki vandað nógu vel til verka (var að láta sytta hlýra á galakjól og þeir voru styttir á sitthvorum staðnum svo að saumurinn varð sjáanlegur framan á öðrum þeirra… fannst það ekki nægilega professional)

Núna er ég með kjól sem ég þarf að láta stytta hlýra og þrengja örlítið í mittið, svo ég spyr: Vitið þið um góða saumastofu/saumakonu sem tekur ekki fáránlega mikið fyrir? :)
And let me tell you, she is not the brightest bulb in the tanning bed!