Nú á ég við það vandamál að stríða að ég er með alveg einstaklega þurra húð í andliti(sérstaklega undir nefi og á höku). Þetta veldur því svo auðvitað að mitt annars undursamlega fés verður aumt og eldrautt við rakstur.

Veit einhver um ódýra og/eða fljótlega lausn á þessu vandamáli (jájá ég veit rakakrem, en hvaða, og hvenær, og hvernig?)