Þið sem sáuð þáttinn, hvernig fannst ykkur breytingin á stráknum?

Mér fannst hann flottur en augabrýrnar svolítið of (þær litu svolítið svona ^^ út) og frekar dökkar. Hárið fannst mér flott og skeggið líka, en skórnir sem hann var í fannst mér alveg off og frekar metro eitthvað. Svo er ég ekki viss með klútinn sem hann var með, finnst það svolítið mikið að venjulegur gaur eins og hann fari allt í einu að ganga með klút (mér finnst það frekar mikið steitment að vera með klút).

En svona ef hann myndi í framhaldinu halda þessu áfram, bara tóna þetta aðeins niður og svona (sem hlýtur að gerast, enda fagmaður að gera þetta allt fyrir hann, eins og pússa neglurnar og svona), að þá eigi hann bara eftir að vera flottur ;)

Langaði bara að forvitnast hvað öðrum fannst um þetta? :P