Ég er með fáránlega mikið slétt hár, og frekar mikið sítt. Það er geðveikt vesen fyrir mig að setja í mig krullur yfir eitt kvöld/dag þar sem þær renna strax úr, sama hversu mikið sprey ég set. Plús að það tekur ógeeeðslega langan tíma að setja í mig krullurnar.
Ég nota venjulega krullujárn, er eitthvað annað sem gæti virkað betur (og vonandi tekið aaaðeins styttri tíma).. ? :)