Ég er að fara að útskrifast í næsta mánuði og er farin að spá í útskriftarfötum. Mig langar rosalega að kaupa mér nýjan kjól en er að spá í að spara og velja úr kjólunum sem ég á fyrir… Ég er með tvo kjóla í huga og langar að spyrja ykkur álits.
Hér eru myndir af kjólunum: http://picturetrail.com/sfx/album/view/18070927

Ég veit að myndin af seinni kjólnum er ekki góð, ég átti enga aðra og nennti ekki að taka mynd af honum :P Síddin sést ekki en hún er rétt fyrir ofan hné.
Ég á líka svartan kjól sem er svipaður kjólnum fræga sem Audrey Hepburn klæddist i Breakfast at Tiffanys en mér finnst skemmtilegra að vera í einhverju litríkara því það er að koma sumar… Eða hvað?

Endilega segið hvað ykkur finnst og vinsamlegast engin skítköst :)

Bætt við 23. apríl 2009 - 21:09
Eitt enn, finnst ykkur þessir kjólar nógu flottir til að útskrifast í? Eða á ég bara að splæsa í nýjum kjól ?
Ég finn til, þess vegna er ég