hvernig er kjánalegasta flíkin í skápnum ykkar ?
ef þið eigið ekkert kjánalegt þá segið þið bara frá einhverju öðru skemmtilegu.


En já ég á alveg fáránlegan kjól , eitthvað sem ég mun aldrei ganga í , ég held að engin myndi ganga í þessu nema kannski skellibjalla. Hann er grænn , svona álíka grænn og geimverur í kjánalegum bíómyndum, og hann glansar og til að gera allt verrra og kjánalegra er hann með svona pulsusniði , nánast sniðlaus hólkur bara. Svo eru einhverjir bjánalegir steinar á honum og eitthvað voða.
Og já það fylgdu með svona griflur/hanskar sem eru líka geimverugrænir (auðvitað) og ná lengst upp á upphandlegg líka skreyttir með einhverjum bjánalegum steinum.

ég fékk þennan kjól þegar vinkona mín var að kaupa sér föt á kílóamarkaði í spúúútnik , hana vantaði nokkur grömm og skellti þessari druslu oná , hennti henni svo í mig.

ég mun líklega aldrei ganga í honum , nema ég skelli mér á grímuball , klædd sem lirfa.

segið mér eitthvað kjánalegt