Ég er mðe þetta klassíska skol litað hár, er frekar ljóst á sumrin en svo dökknar á veturna.
Hef litað á mér hárið (lýst það) en nú síðast keypti ég einhvern of ljósan lit, hárið á mér varð gult og ég hætti (átti örugglega að bíða eftir að það yrði hvítt en ekki séns þegar ég sá hvað var að gerast). Nú er það einhvern vegin appelsínugult og eiginlega eins og gulrót ef ég stend undir ljósi.
Hvað get ég gert? Frétti af einhverju bláu sjampói sem á að hjálpa og maður á að bíða og sjá til. Athugaði með litun en þær sögðu að það yrði að lita rót sér og svo strípur, samtals 18.000 kall!
Veit einhver hvar þetta sjampó fæst?