Ég er náttúrulega rauðhærð en vil ná enn rauðari lit en ég er með. Hinsvegar vil ég ekki þurfa að aflita hárið fyrst.

Vinkona mín sem er rauðhærð gerði þetta og það heppnaðist mjög vel, liturinn var awesome en fór fljótt úr. Það var hinsvegar gert hjá frænku hennar og e-ð vesen.

Ég reyndi að gera þetta fyrir stuttu, reyndar bara strípur, og á hárgreiðslustofunni voru engir mjög rauðir litir, allt bara koparrautt og e-ð. Varð ekki eins og ég vildi.

Veit einhver hvar ég get fengið að heillita hárið í flottum eldrauðum lit?