Undafarið hef ég verið að dunda mér við að búa til andlits- og hármaska. Hef prufað það á nokkrum vinkonum og einnig hef ég verið að snyrta á þeim hendurnar og neglur. Þær hafa sagt að þetta kemur vel út og virkar mjög vel.
Þannig spurningin er hvort ég gæti gert eitthvað úr þessu, eins og að gera þetta heima fyrir lítinn pening? Ég er bara 17 ára svo ég efast um að það myndu margir vilja láta svona unga stelpu gera þetta.