Þar sem fólk hefur augljóslega fengið góða hjálp hérna með að finna sér föt sem passa við hvernig maður er byggður og þess háttar.. svo ég ætla svona að prufa.

Ég er voðalega fátæk á föt sem mér líkar við, ég á heilann helling af fötum en mér finnst þau bara fara mér hræðilega illa. Svo að eg er svona smátt og smátt að reyna að finna mér eitthvað sem henntar mér betur.

Nema ég veit ekki hvað það er! Ég á mér það yndislega vandamál að finnast ég vera með alveg hræðilegann vöxt, s.s. ég er frekar lávaxin, 160. Ég er með ekkert mitti what so ever og engar svakalegar mjaðmir heldur.
Basicly er ég voðalega bein svona til.. hliðanna í vexti.

Seeeem lætur mér líða eins og karlmanni í öllum kvennlegu fötum sem ég geng í.
Ég þarf smá hjálp.