Ókei, mér tekst alltaf að lenda á einhverjum fávitum sem rústa hárinu mínu þegar ég fer í klippingu… Er einhver sem þið getið mælt með sem er alveg kúl?

Líka helst einhver sem er flinkur að lita hár og svona… þarf að aflita triljón sinnum áður en ég get fengið það sem ég vil :P

Og já, bara svona sem væri plús… þá finnst mér voðalega þreytandi þegar sá sem klippir hárið mitt er endalaust “Nei, æi ertu alveg viss… nei ekki gera það.. það er ekki flott.. þú skemmir hárið.. BLABLABLA..” …Svo ef manneskjan gæti verið laus við svoleiðis tuð þá væri það frábært :P Hah

Bætt við 15. júlí 2008 - 17:52
Og já, ég er semsagt ekki að leita að nafninu á einhverjum stofum heldur fólkinu á stofunum :)