Mig er farið að langa svolítið að prufa að setja í mig permanent, er orðin dauðleið á rennislétta hárinu á mér.
Hvernig er þetta allt með permanent, hefur einhver fengið sér svona og hvernig var það þá? Er líka til í að heyra einhverjar verðhugmyndir og stofur sem gera þetta.
Svo er það eitt sem ég hef heyrt að fólk með rennislétt hár getur ekki fengið sér svona, að það renni bara úr á nokkrum sturtum, stenst það eitthvað?

Bætt við 20. apríl 2008 - 22:07
svo er ég með þvertopp, er ekki kjánalegt að fá krullur i hann? haha