ÉG er í smá pickle hérna (elska þetta orð)
Mig alveg bráðvantar árshátíðarkjól!
Árshátíðin er bara núna eftir akkurat viku ( 9. Apríl) og ég hef ekki fundið (ekki leitað neitt reyndar) svo mig vantar úber flottann kjól!
Ég nefnilega er í árshátíðarnefndinni, er líka í leiklist sem á að sýna leikrit á árshátíðinni og fullt að læra fyrir þessi bölvuðu samræmdu!
Ég hef því engann tíma til að fara í kringluna til að þræða aaallar búðirnar til að finna kjól sem ég finn svo kannski ekki!
Þannig að mig langar bara að koma með nokkra punkta af kjól sem ég ýmindaði mér en ef þið hafið ekki séð neinn líkann honum þá getiði samt alveg bent mér á góða búð með fallegum kjólum.
Og ATH ég á MJÖG lítinn pening og má kjóllinn því ekki vera rándýr! :$
(Here goes nothin; )
-Í einhverjum fallegum lit, ekki svörtum, hvítum, brúnum eða gráum og helst ekki dökk bláum eða dökkgrænum. Heldur fallegann sterkann lit t.d. bleikann:'D
-Í prinsessu sniði (með svona kannski smá púff pilsi, svo krúttlegt)
-Einhver sem er með belti eða ég gæti notað með belti (ekki mikilvægt samt)
-Ekki síðari en hnén, og ekki einhver mini-kjóll!

Fyrirfram þakkir fyrir hjálp :)
-Berglind182