Ég er gersamlega græn þegar að kemur snyrtivörum. Ég á drasl til að halda húðinni hreinni og svona en svo veit ég ekki hvert ég á að snúa mér til að finna restina.

Mig vantar semsé make og púður. Eiginlega bara það og jú kannski augnblýant ef þú getur mælt með einhverjum góðum.

Getur einhver bent mér á verslun með gott úrval, sem býður upp á ágætis ráðgjöf varðandi val á snyrtivörum? Ég fór í Hagkaup og Lyf og Heilsa en þau vissu ekki rass. Konan í Lyf og Heilsa sagði að ég væri svo föl að þau þyrftu að sérpanta make fyrir mig…

Þakkir, þakki