Hæ!

Málið er að ég er að leita mér af stelpu-úlpu og er að fara í bæinn eftir skóla svo ég hef ekki mikinn tíma en vitiði hvar ég get fengið flotta úlpu ? Ég er frekar ákveðin hvernig úlpu ég vil samt..

Annað hvort svona græna hermanna úlpu, ekki með neinu munstri eða neitt þannig, kalla hana bara hermannaúlpu því ég vil hafa hana í þessum ‘'hermanna-græna’' lit. Ég vil hafa hana með hettu og svona loðkraga í kringum hettuna. Ég vil hafa hana frelar síða en ekki of síða, hún má ná yfir rassinn en það er ekki nauðsynlegt.

Eða.. Svarta úr svon einhverskonar gallaefni, frekar síða, en ekki of. Með hettu og loðið svona í kringum hettuna!

Veit einhver hvert ég get farið.. Vil helst hafa hana undir 10.000 kallinum :)

Hjálp hjálp hjálp
You know there ain´t no devil, it´s just god when he´s drunk!