Jæja nú er 80's ball á planinu næstu helgi og mig vantar föt!


Ég á svart blúndupils sem mamma átti frá þessu tímabili og pælingin var að vera í því, svörtum (eða skærfjólubláum?) leggings og svo skærbláum skóm. Svo vantar bara eitthvað yfir efrihluta líkamans :)

Einhverjar tillögur?
Og vitiði um einhvern stað þar sem 80's föt gætu leynst?
Eða eitthvað sem nálgast það að vera 80's:D