Hvar fær maður svona regnkápur sem margar stelpur eru í núna? Svona síðar og doppóttar. Ég man ekki alveg úr hvaða efni þær eru, en það er svona kinda glansandi .. minna á glæran borðdúk sem maður setur yfir annan borðdúk svo matur festist ekki í honum? .. Yfirleitt heima hjá fólki þar sem lítil börn eru.

Og ef einhver hefur hugmynd um hvað þær kosta, þá má verðið alveg fylgja með svarinu. ^^

Nenni ekki að labba í hverja einustu búð í Smáralind, Kringlunni eða á Laugarveginum til að finna þetta.