AKA, þessi í græna og bleika dæminu, er mesta drasl sem ég hef á ævi minni prófað.

Hann þykkir ekki neitt, brettir augnhárin aaaafar lítið upp, það er næstum ógerlegt að ná honum af, það er ógeðsleg lykt af honum og hann klessist alltaf á augbeinið því hann tekur svona korter að þorna.

Í mörgum svörum hér á huga hef ég séð ‘Geðveikt góður’, ‘Besti maskari sem ég hef prófað allavega’ etc, etc.

Þið hérna sem hafið prófað hann og segið hann svona geggjaðan, segið mér eitt. Hvað nákvæmlega er gott við hann?