Ég þarf að fara í klippingu bráðum, sé varla niður fyrir toppinn minn. Ég hef alla mína ævi farið á sömu stofu og mig langar að breyta til og fara á aðra ég hef heyrt marga góða hluti um T&G og er að hugsa um að skella mér bara þangað ^^

Ég er með topp yfir ennið og hár dálítið niður á bak og einvherjar smá styttur í því, mig langar að breyta til, en ég hef bara ekki hugmynd um í hvað.
Ég er með frekar kringlótt andlit og ég vil helst halda toppnum því ég er með frekar ljótt ör á enninu er búin að fletta í gegnum endalaust af síðum en finn ekki neitt sem heillar við fyrstu sýn.
Nú ert bara spurningin kæru samhugarar
Hjá hverjum á ég að panta tíma? (og jafnvel hvar?)
Og eru einhverjar hugmyndir af flottum klippingum?

ps. Afsakið hvað þetta er leiðinlega og illa sett upp er að flýta mér frekar mikið

Með fyrifram þökkum
-Padfoot
You can't hold no groove if you ain't got no pocket!