Fór á Onix áðan og spurði hvort þær ættu nokkuð tíma fyrir mig, er að fara út eftir viku og er þetta í raun seinasta færið fyrir mig til að geta gert nokkurn skapaðan hlut fyrir sjálfa mig.

Þær sögðu að það væri tími fyrir mig eftir klukkustund í klippingu, mætti þangað eftir smá viðkomu á ‘House of pain’ og fékk flotta klippingu á 4300 krónur. Ekkert smá sátt!