Jæja…
Eg er að fara á þorrablót og síðan árshátíð á næstunni og vantar bara einhvern svona töff kjól! Svolítið svona freaky/öðruvísi kjól (Tek það samt fram að ég er ekki ein af þeim sem eru öðruvísi bara til að vera öðruvísi.)

Ég er orðin svo leið á öllum kjólunum mínum, þó ég hafi ekki einu sinni notað þá suma hverja. Þeir eru bara “boring” í útliti ef þið skiljið.

Ég ætla að testa rokk&rósir, spúútnik og allt heila 2nd hand klabbið, en getið þið bent mér á einhverja fleiri staði þar sem ég gæti fengið svona sérstakan kjól?

Ég hef bara svo rooosalega takmarkaðann tíma ;/.. Bara nokkrar klst um helgina!! Annars myndi ég að sjálfsögðu bara hjálpa mér sjálf og skanna alla Reykjavík!

Ég er með frekar svona rockaðann stíl btw.

takk takk :)
“Imagination is the only weapon in the war against reality.”