fengu ekki flestir e-ð af fötum í jólagjöf?
er ekki málið að segja frá hvað kom úr mjúku pökkunum..

sjálf fékk ég:
langerma svartan bol úr naked ape. með svona gullituðu keðjumunstri, frá kærastanum.
hvítan hnepptan hlýrabol úr abercrombie&fitch, frá frænku minni.
hnésokka, silfurlitaða, frá vinkonu minni.
tvennar náttbuxur, frá tengdó.
ótrúlega flottar grifflur; með svona íslensku munstri, gert úr perlum. sem amma prjónaði handa mér.
svona grátt loðið, eyrnaskjól? (man ekki hvað það heitir..) frá vinkonu minni.