Jæja, núna eru flottu Vans skórnir mínir sem ég keypti í apríl að verða allt of slitnir til að ég nenni að ganga í þeim, svo mig fer að vanta nýja, og ætla að reyna að finna á útsölunum sem eru að fara að byrja.
Ég tími varla að kaupa skó á átta þúsund, svo ég ætla að fá mér eftirlíkingu í þetta sinn, hvar fást flottar og góðar eftirlíkingar af Vans skónum? Og hvað kostar það? (helst í Kringlunni)

Takk.