Málið er að ég er að fara á jólaball í kvöld, og hef ekki hugmynd í hverju ég á að fara :|

Það er sparilegt þema og ég á bara smá spariföt; en þau eru; ljósbrúnt teboðspils, ekkert sérstaklega flott eða neitt svoleiðis.

svart pils sem er svona “emo” tíska vs. viktoríutímabilið, passar best með svörtum&hvírum röndóttum gammosíum, en ég er eiginlega búin að ofnota þetta pils á skólaböll.

svartan nýjan kjól úr Warehouse, svona voðalega einfaldur, svartur með svona léttu neti sem ég man ekki hvað heitir yfir og svona smá pallíettubelti, var að fá hann og er ekkert smá ánægð, en er samt ekki viss hvort ég vilji nota hann á jólaballið sem er í kvöld eða vina&paraballið =/

og svo að lokum skotapils með burberry munstri, ekki með svona “veski” eða neinu. Sem ég elska að vera í, það er svona rétt fyrir ofanhné sítt og ótrúlega flott.

En ég get ekki ákveðið hvað af þessu ég vil fara í. Ég veit þetta er næstum tilgangslaust og flókið, en það sakar ekki að spurja um aðstoð ykkar.

Hjálp?