Já góðann daginn.

Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hefði rekist á grifflur í bænum. Svona grifflur sem eru vetlingar en samt grifflur. Geta verið bæði. Ég leitaði hreinlega um alla kringluna af þessu en fann ekki neitt nema kvennmanns í Assessories (hvernig sem það er nú skrifað) og ég er að leita af karlmannskgrifflum.

Svo er það annað mál. Hár. Já nú eru að koma jól og manni langar aðeins að breyta til. Mig langar til þess að fá mér permanett í hárið en ekki þannig að ég lýti út eins og póstulínsdúkka heldur bara smá svona liði.
Leynist kannski einhver hérna sem veit hvort að þetta sé hægt. Hefur kannski beðið um þetta og verkið hefur heppnast eða öfugt. Ég þori nú ekki að vera að hringja á stofu og spurja hvort þær geti búið til liðið því er það ekki yfirleitt þannig að þær lofa gulli og grænum skógum.

http://www.celebopedia.com/simpson/images/jessica_simpson.JPG

http://i.realone.com/assets/rn/rs/2004/medium/Jessica_Simpson_-_AMAs_111404_-_med.6648668.jpg

Ég er að tala um svona liði/krullur.