Ég held samt að þetta sé bara einstaklingsbundið.. Ég er td ennþá með gat í vörinni þó ég hafi tekið lokkinn úr fyrir 2 árum.. Ég er líka ennþá með gat í augabrúninni og það eru líka um 2 ár síðan ég tók þann lokk úr.. En bæði götin eru gróin innst en ég held það sé lítið mál að þvinga pinna þarna í gegn þó ég hafi ekki prófað það sjálf núna..
Ég var einu sinni með gat í augabrúninni, tók það úr og svo 2 árum seinna setti ég lokk aftur í og það var ekkert mál.. Þurfti aðeins og þrýsta þessu í gegn en það hafðist..
Vinkona mín er líka með gat í tungunni, tekur lokkinn oft úr og gleymir að setja hann aftur í.. Það hefur liðið ár þegar hún er ekki með neinn lokk og svo setur hún hann aftur í og ekkert mál.