Jæja, sumarið á enda (eiginlega :P), skólinn að byrja og hlutastarfið tekur við svo ég var að pæla hvort það sé ekki tímabært að gera smá uppgjör. Hvað hafið þið eytt miklu í fötum í sumar?

Ég byggi mínar tölur á pokunum sem ég geymi (ég er með áráttu og geymi alla poka þannig að þetta eru áreiðanlegar heimildir :Þ) og þeir eru 20, hver poki hefur kostað mig svona 5000 kr, give or take :P sem gerir um 100000 kr og þá er ekki talið með pokana sem gætu hafa verið notaðir í eitthvað annað og skildir eftir annars staðar eða hent.

Auðveldast væri að fá yfirlit fyrir kortinu og fá nákvæmar tölur en veit varla hvort ég þori því :D
Guð elskar þig,- en Djöfullin elskar þig meira